...Þegar við erum ekki í Ísnum...

Ísbúðargellurnar!

07.09.2008 21:42:02 / *Elín Sigrún*

The girl that has nothing to do!

Yup...það er víst ég! Allir að drukkna í lærdómi í kringum mig en ekki ég :$ fór á djammið í gær með mínum heitelskaða og vinum hans...rosa spontant djamm og Raggi (litli eða veltukallinn eins og Ása vill þekkja hann) var barvinurinn minn og vorum við saman í skotunum og það er alltaf hversu oft ég djamma með kokkunum þá skánar þynnkan mín aldrei og er dagurinn í dag einmitt mikill þynnkudagur og  einmitt fullkominn þynnkudagur, ógeðslegt veður úti að ég fæ ekki samviskubit að vera eins og skata heima fyrir og ekki matur hjá pabba þannig ég þarf bókstaflega ekki að gera neitt. Ég víst enga vini þessa dagana því þær halda framhjá mér með nýjum vinum sem heita skólabækur. Ég neyddist víst að spreyta mig í frönskunni í dag og var að segja eitthvað og pabbi Ara leiðrétti mig alltaf og mér leið eins og Joey því mér fannst ég vera að segja það alveg eins og hann var að segja það en samt var ég víst að segja eitthvað annað...ef ég flyt einhverntímann til Frakklands ætla ég að vera þessi mállausa týpa með skrifblokk alltaf við hönd. JÆJA! Þetta er orðið mest rugl blogg sem ég hef skrifað ever þannig bless

» 3 hafa sagt sína skoðun

25.08.2008 13:31:03 / *Elín Sigrún*

Skoðar einhver þessa síðu ennþá?

Alla vegana here goes...
Við erum 6 stelpur sem eigum víst þessa síðu...sumar misvirkar og sumar ekki svo virkar og undanfarið erum við búnar að vera vanvirkar. Það nýjasta nýtt hjá okkur er að Anna vinkona okkar eignaðist strák (hún varð ólétt áður ;)) og fæddist hann 27.júní og var skírður Kristófer Ísak.
Írena og Silja eru byrjaðar í Hraðbraut og búnar að vera á fullu þar og búnar að taka próf í stærðfræði og fengu rosalega flott úr því prófi. Sandra er byrjuð aftur í MK og er ennþá í kynningartímunum og þær allar stefna að útskrifast bráðlega!
Sandra þá um jólin og hinar tvær næsta sumar! Ég og Ása vorum að hætta sem leikskólakennarar á föstudaginn sl. og erum bara einhverjir aumingjar sem eru atvinnulausar í viku en þá byrjar skólinn hjá okkur.
Ása þá í leið í Lögfræðina og byrjar á því að mæta bara 2x á viku þangað til einn áfanginn hennar byrjar í lok september og ég í Hagfræðina og þar þarf ég að mæta í skólann 6x á viku JÁ! ég þarf að mæta í skólann á laugardögum kl. 8:20!!!!
Mikill bituleiki þar í gangi því fyrstu drögin á stundatöflunni minni var þannig að ég var í fríi á fimmtudögum! Ekki lengur nei það átti víst eftir að bæta inn dæmatímum inn á þá töflu! :evil:
Jæja er búin að fá mína útrás í bili þangað til næst! (Whenever that will be :lol:)

» 3 hafa sagt sína skoðun

24.06.2008 18:19:30 / *Ása Margrét*

Ást ást og ekkert nema ást...

Já stelpur ég verð að seigja ykkur það ég er ástfanginn......:d


Við kynntumst reyndar fyrir löngu síðan og það var ást við fyrstu sýn, öll þessi ár höfum við þráð hvort annað úr fjarlægð en ég bara get ekki meir, þessi fulkomna lögun, geislar af fegurð, hvernig er hægt að standast það....

Ég veit að það er big price to bay til að við getum verið saman en ég er tilbúin að pay the price....

Það var svo þegar við  fórum á sex and the city myndina að það urðu ótrúlegir endur fundir......
Sjáið þessa fegurð......

http://www.polyvore.com/cgi/img-thing?.out=jpg&size=l&tid=80159
Ég get ekki lifað ef ég fæ ekki Manolo Blahnik's........

» 3 hafa sagt sína skoðun

06.04.2008 04:00:56 / Írena

Fyrir þá sem leiðast... þættirnir eru að byrja aftur...

Þættir Næsta númer Næsti þáttur Samþykktir þættir
 

 
One Tree Hill 5x13 14.4. 6
Bones 3x10 14.4. 1
Brothers & Sisters 2x13 20.4. 1
Desperate Housewives 4x11 13.4. 2
ER 14x14 10.4. 4
Ghost Whisperer 3x13 4.4. 4
Gossip Girl 1x14 21.4. 2
Grey's Anatomy 4x12 24.4. 1
SVU 9x15 15.4. 3
Samantha Who? 1x10 7.4. 3
Supernatural 3x13 24.4. 1
Scrubs 7x07 10.4. 5
Cold Case 5x14 30.3. 5
Boston Legal 4x15 8.4. 4
Ugly Betty 2x14 24.4. 3

Friday Night Lights     Óstaðfest
Prison Break

Óstaðfest
House

Óstaðfest
Big Shots     Óstaðfest

Heroes     Haust '08
Nip/Tuck

Haust '08
Private Practice

Haust '08
Dirty Sexy Money     Haust '08


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.03.2008 18:32:57 / *Ása Margrét*

DAUÐ!!!!!!!

Þessi síða er DAUÐ!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!:^)

» 3 hafa sagt sína skoðun

26.01.2008 19:53:28 / *Ása Margrét*

Jæja þá ný síða!

Sko núna verða allir að vota á nafnið á nýju síðunni!

Ég er með nokkrar uppastungur.

hoesB4bros eða hoe´sb4bro´s

gossip_girlz

Var með e-h meira en buinn að gleyma því....... koma með uppá stungur og ákveða sig takk fyrir!


» 7 hafa sagt sína skoðun

23.01.2008 10:42:59 / *Elín Sigrún*

Smá pása um París

Skemmtilegur dagur í gær....eða það fannst mér í byrjun. Ég meina það var rigning sem verður til þess að snjórinn fari en nei það varð að frjósa allt í gær líka sem varð til þess að það var keyrt á mig...já loksins var ég í rétti og verður þetta bílsslys numero tres...allt þegar þrennt er?? Það var nefnilega að ég og Ása vorum á leiðinni á fund hjá Glitni og ég var að leggja í bílastæðin fyrir framan Glitni og bíllinn fyrir aftan mig hægir á sér og strætó sem var eftir bílnum flautar á þau en nær ekki að hemla almennilega því það var frost og strætóar greinilega renna og renndi þar af leiðandi á bílinn og bíllinn á okkur jej!!!.....NOT!

Ég og Ása fengum svo mikið högg á okkur og við auðvitað aumar í bakinu fyrir ákváðum að kíkja upp á slysó, greyið Írena hélt að við ætluðum að heimsækja hana en við vorum í alvörunni sjúklingar. Annars í annað...

Silja var að kaupa sér bíl í gær Peugeot 206, 2006 módel silfurlitaðann uh...beinskiptan og með 8 dekkjum! OG ÍSKÖLDU gírskiptingspinna (ég veit ekki hvað þetta heitir!)

Anna og Grétar voru að skrifa undir leigusamning upp í Hafnarfirði

Ása og Silja eru núna leikskólafóstrur eða í dag heitir þetta kennari.

Írena auðvitað upp í Slysó að skrá fólk inn.

Ég og Sandra erum að fara útskrifast í maí!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.01.2008 14:10:32 / *Elín Sigrún*

Seinasti hlutinn um fyrsta daginn...

Frelsið…

Við fórum fyrst í göngutúr (dáldið fullar) og með okkar læti og við vorum ekki beint nálægt neinu djammlegu þannig við vorum einhverjir útlenskir rónar labbandi um. Svo var haldið á ástralískann bar (Við förum víst alltaf á ástralíska skemmtistaði þegar við erum úti, var að fatta það núna), við stóðum í röð í byrjun og helvítis brunavælið var í gangi allann tímann! Þangað til það var brotið niður (Vúhú!)
Tveir gaurar byrja að tala við okkur og spyr okkur hvaðan við komum og hvað við erum að gera í Frakklandi og hvort okkur sé ekki kalt. Við spjöllum aðeins við þá og spurja þeir okkur hvort þeir mega koma inn með okkur og eftir það myndu þeir láta okkur vera og leyfðum við þeim það. (Það er nefnilega erfitt fyrir stráka að komast inn á staði án stelpur í París, veit ekki um hina staðina) Aðrir byrja að tala við okkur og spyrja hvort það sé ekki frábært að djamma í Reykjavík og við auðvitað að sjálfsögðu alla vegana á sumrin þegar það er sól allan tímann. Einn gaur hafði reyndar komið til Íslands áður en hafði ekki djammað því hann var með foreldrum sínum.

Barinn…
Var TROÐINN!!! Fólk dansandi upp á borðum og á gólfinu og bara alls staðar!!! Við festumst aðeins út á horn hjá barnum því Silja vildi geyma jakkann sinn og fengum við okkur Smirnoff Ice með frímiðanum sem við fengum þegar við komum inn. Byrjuðum að tala við fólk í kringum okkur og var sagt við okkur oft að við værum mjög sætar. Gaurarnir tveir sem við höfðum talað fyrr og leyft að koma með okkur inn byrjuðu að spjalla við okkur og voru þeir eiginlega bara uppáþrengjandi og ekki smá! Við djömmum aðeins þangað til ég og Írena erum orðnar þreyttar og vildum fara heim á hótelið. Við kvöddum stelpurnar og ætluðum að fara út! Þetta er ekki rosalega stór staður en rosalega troðinn og það fréttist fljótt að við værum Íslendingar. Áleiðinni út týndi ég Írenu og var ég alltaf stoppuð og var beðið mín svona 15 sinnum bara á leiðinni út bara og að ég væri mjög falleg svona hundrað sinnum. En svo þegar ég var LOKSINS komin að hurðinni vildi dyravörðurinn ekki hleypa mér út en samt í gríni og svo fann ég loksins Írenu og við byrjuðu að labba í leit að leigubíl. Svo sáum við leigubíl hleypa fólki út og við fyrir utan að bíða eftir honum og á sama tíma var kall að kalla á okkur “taxi” en við ákváðum að fara í ekta leigubílinn í stað hins kallsins. Svo var bara farið að sofa og hinar stelpurnar komu einhverntímann um nóttina.


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.01.2008 11:27:11 / *Elín Sigrún*

París part dos

Þegar komið var á hótelið…

Já, hótelið…það byrjaði með smá töfum. Konan sagði að herbergin okkar væru ekki tilbúin og að það væri tilbúið eftir hálftíma, fengum í staðinn frímiða á barinn og fórum við þangað og fengum okkur að borða (N.B. I was starving en samt á sama tíma þunn og þreytt) klukkutími leið og ætluðum við að fá herbergin okkar, sem áttu að vera hlið við hlið eða á móti hvort öðrum, (við vorum með tvö herbergi).
Við vorum látnar fá fyrst herbergi á sitthvorri hæðinni, tvær á fyrstu hæðinni og hinar tvær á fjórðu hæðinni. En við neituðum herbergjunum og það myndi vera klukkutíma bið eftir tveimur herbergjum hlið við hlið (það var bið sem við vorum til að bíða) og ætluðu þau að láta okkur fá aðra frímiða en sögðu þeim að við ætluðum að versla og voru töskurnar okkar geymdar fyrir okkur.

Leigubíllinn

Var svo lagt af stað á Les Halles og það er mjög villandi staður og kaldur og ekkert rosalega flottur enda er þetta svona underground mall. Settumst í leigubílinn og sögðum að við vildum fara á Les Halles (já sögðum það eins og það er skrifað;) að sjálfsögðu skildi leigubílsstjórinn okkur ekki einu sinni baun í bala og hugsaði örugglega “Great! Ég sit fastur með heimskum túristum” (á frönsku að sjálfsögðu). Ég mundi svo að Les er sagt “le” og það er ekki sagt h í byrjuð orða og byrjað að segja “Le Alles” en samt skildi hann okkur ekki, þangað til hann hrópaði “Le All, underground shopping” og við bara “yes!” Loksins! Svo strýddi hann okkur allan tímann með “Les Halles”.

Herbergin…

Já við fengum loksins herbergi, ég og Silja saman og Írena og Ása saman og alveg hlið við hlið. Silja og ég völdum okkur helminga á rúminu og vígðum herbergið (hehe) og svo var draslað til því okkar herbergi átti að vera vibba herbergið. Írena missti sig dáldið að skoða mini barinn (hjá þeim) en fattaði ekki að mini barinn er beinn tengdur við reikninginn þeirra og var reikningurinn allt í einu kominn í 200 evrur bara af mini barnum (það var samt leiðrétt á endanum nema Fanta drykkurinn)
*Ása Margrét* Írena mun seint gleyma fanta drykknum!

Barinn…

Já þegar herbergin vígslurnar voru búnar gerðum við okkur til og fórum á barinn á hótelinu (uppáhaldsbarinn okkar víst!) Þarna sátum við í okkar sakleysi og Ása var byrjuð að fríka aðeins út, út af gaurnum sem situr á móti henni og starir alltaf á hana (í framhaldinu orðið creepy verður gæsahúðaður) og hann var mjög gæsahúðaður. Gaurinn með honum byrjar að tala við okkur og spyr hvort við séum að tala afrísku, við segjum auðvitað að við erum að tala íslensku og séum Íslendingar. Hann hafði víst verið að hlusta á okkur og fannst við tala afrísku (hann var líka mjög gæsahúðaður). Han byrjar að tala við okkur og spyr okkur hvað við heitum og hvað við erum að gera í Frakklandi og one thing led to another og vorum við á leiðinni í partý með þeim (eða það héldu þeir hahaha!) Við segjum að við ætlum að fara upp í herbergi og skipta um föt og gera okkur til fyrir djammið.
En áður við kvöddum þá ákvað Ása að fara í handahlaup, ég veit ekki aðdragandann að þessari sögu því ég var einhversstaðar annarsstaðar með Írenu (örugglega að kvarta um hitann í herberginu þeirra). En Ása nær að slasa sig á ryksugu sem var á gólfinu með því að lenda á hana og svo kvöddum við mennina og sögðum hitta þá seinna um kvöldið í þessu partýi.
*Ása Margrét* Ég man heldur ekki afhverju ég fór í handa hlaup.......man bara eftir því að ég hafi cerið neydd til að leyfa ykkur að mynda óóið á rassinum og silja setti plástur :)

Flótinn…

Við ætluðum aldrei að fara djamma með þessum gaurum en ætluðum samt á djammið enda laugardagskvöld. Áður en þeir töluðu við okkur hafði Silja spurt barþjóninn hvar væri best að djamma og fengum við lista af stöðum. Áður en við gátum farið út þurftum við að undirbúa flótta frá gaurunum. Því ég og Írena löbbuðum út úr herbergjunum og sáum einn gaurinn labba framhjá okkur (þeir voru sem sagt að bíða eftir okkur). Planið var að hlaupa niður Fire escape stigann og vorum mjög pro að því hlupum og földum okkur hjá hurðunum og svo var það stiginn og út!


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 18:16:53 / *Elín Sigrún*

Er til blogg um París?!?!!?!

Jæja þar sem við erum ekki duglegar að blogga um lífið og tilveruna….kemur sumt dálítið seina hjá okkur og er þetta blogg eiginlega um eitthvað sem gerðist dáldið síðan…þið eflaust vitið að við (s.s. ég, Silja, Ása og Írena) fórum til Parísar í desember í fyrra (s.s. 2007). En vitið þið eitthvað meir? Kannski það að Silja hafi bitið mig í einhverju brjálæðiskasti. Jæja þetta er blogg snýst um Parísarferðina okkar og kemur í nokkrum bútum því ég er ennþá að skrifa um það á word-inu, stelpur þið megið alveg bæta einhverju við ;)

Þetta byrjaði með því að Silja sannfærir mig að koma með sér til Parísar í stað þess að ég fari með skólanum í París og varð það til þess að ég skráði mig úr “Da Vinci” áfanganum.
Eftir margar umræðum og margar árangurslausar tilraunir að kenna Silju smá frönsku, ákváðum við að skella okkur út 14. desember því þá værum við búnar í jólaprófunum okkar (þetta var áður en Silja var rekin úr MK), en auðvitað átti mamma Silju afmæli á þessum degi og til að móðga ekki mömmuna með því að stinga af á afmælisdeginum hennar frestuðum við ferðinni um dag (líka því það var ódýrara að fljúga út þá;) og koma heim 19.des (líka því það var ódýrara að fljúga heim þá;).
Svo var keypt miðana og svo ákváðum við að bjóða fólki með og Ása og Írena ákváðu að stinga sér með til Parísar með okkur (reyndar var það aðeins erfiðara að sannfæra Írenu).
Eftir það völdum við hótel og var Hilton hótelið við Efell turnin fyrir valinu, líka út af því ég, Elín, er Hilton hótels snobb.

Svo var lagt af stað upp á flugvöll…burr…

Við vorum mjög heppnar að það var flogið út, daginn sem við fórum því í vikunni var búið að vera hrikalegt veður og mörg flug aflýstust, sem útskýrði kílómetra löngu raðirnar (smá öfgað;) að “check in desk”-unum. En heppnin var aftur með okkur og við vorum með kiosk miða (Jej fyrir kiosk básana!!!). Ég og Silja myndum sitja saman í flugvélinni því við keyptum okkar miða saman og Ása og Írena einar á sitthvorum stað.

Svo varð borðað morgunmatur, drukkið á Panorama og farið í flugvélina…

Ég byrjaði á því að æla í flugvélinni, ég meina drukkið fyrir kl. 7 að morgun og nýbúin að borða og vera full fyrir 7!!! Það var allt of mikið fyrir litlu mig. Svo rotaðist ég og missti af flugtakinu.

Svo var lent og við fórum í gegnum geimskipið…

Þegar við löbbuðum gegnum hliðið, þar sem hellingur af fólki stendur og bíður eftir fólki og heldur stundum á blaði með nafni á.
(Það sem kemur næst gef ég mér leyfi til að skrifa um þar sem við erum komnar heim, við erum á lífi og erum heilar á húfi)
Ætluðum við að fara út og finna okkur leigubíl en í staðinn kallar gaur á okkur “taxi” og við bara “oui” (erum komnar til Frakklands nebla F.Y.I). Gaurinn fer með okkur í lyftu sem liggur að bílastæði undir flugvellinum. (Ég get ekki talað fyrir hinar stelpurnar en í mínum huga hélt ég að hann var að fara ræna okkur og biðja fjölskyldur okkar um lausnarfé eða eitthvað verra). Hann hleypir okkur inn í bílinn sinn og raðar töskunum okkar inn í bílinn (ég neyddist til að sitja í framsætinu!). Svo var haldið upp á hótel og gaurinn reyndist vera indælista kríli og var svona ferða”guide” og innihélt margar upplýsingar sem voru sumar spennandi og var hann ekki sáttur með “vá-in” okkar þegar við sáum Efell turninn þannig við þurftum að sannfæra hann með því að segja það aftur.

*Írena* Það sem ég hugsaði um þegar við vorum labbandi um bílastæðið undir flugvellinum, var hvað við gætum verið vitlausar.. þarna fór hann með okkur þvílíka krókaleiðir þarna niðri og við bara erum labbandi með allan farangurinn okkar með einhverjum ókunnugum gaur í parís.. það fyrsta sem við gerum.. svo komum viðað bílnum og ég hugsaði.. shit þetta er bara venjulegur bíll en ekki leigubíll.. hvað erum við að hugsa???? Hann á eftir að drepa okkur... en svo reyndist þetta hinn almennalegasti gaur :D .....

back to you Elín ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 03:01:04 / *Ása Margrét*

B-L-OND

Stelpur er ég rugluð.....eg veit það reyndar en ég var samt að spá ég langar sooooo að lita hárið mitt ljóst aftur........og mig vantar ykkar opinion......

Og verið honest........ég veit að elín mun gera það.....en þið verðið líka að gera það......

 

 

:lol:Kveðja Ása Wannabe blond!:lol:

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.01.2008 20:14:47 / *Elín Sigrún*

Ætli ég fari ekki að blogga núna...

Jæja gott fólk, hef ég ákveðið að blogga á þessari síðu þótt ég hafi ekki beint neitt til að blogga um en ætli það sé ekki tilgangurinn á bloggsíðu. Ég meina það er bloggað um allt og ekki neitt á þessari síðu, ætli þá bloggið mitt ekki verið í flokki síðnefndu.


Á morgunn ætla ég að byrja á átaki og ætla 2x í ræktina og mæta í sund. Nota bene ætla ég að láta Ara vita af þessu plani það verður pottþétt farið eftir því. Annars hvað er að frétta af mér? Jú skólinn er byrjaður og er ég varla í honum. Mamma og Marey eru farnar enn á ný og ég og Ramir erum ein í búinu eða meira réttara sagt hann einn í búinu þar sem ég kem bara heim í sturtu og til að skipta um föt. Ég er reyndar heima hjá mér núna því Ari er að vinna og ég nenni ekki neinu.


Ætli ég sé ekki byrjuð að bulla aftur þannig ég er hætt að blogga.

*Elín hunsaða*


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.01.2008 07:51:56 / Írena

jæja

Þetta með þetta verkfall hjá þáttunum okkar...

Er búin að fullkomna listann minn og Ásu.. um hvenær hvaða þættir koma..

en í flestum tilfellum.. eru þeir sem við skrifuðum inn þeir einu sem verða sýndir.. eitthvað gæti verið vitlaust.. það er ekki auðvelt að finna þetta!

allavega.. þá getið þið séð statusinn hjá þáttunum hérna: http://www.tvsquad.com/2007/11/14/how-is-your-favorite-show-affected-by-the-wga-strike/

 sumar seríur fara í gang leið og verkfallið er búið.. en flestir  vilja ekki setja seríuna aftur í gang fyrr en hægt er að sýna alla seríuna saman...

þannig Seinfield er málið.. ása ætlar að lána mér!  

Ég er bara fegin að það sé búið að búa til 1 nýjan þátt hjá nokkrum uppáhaldsþáttunum okkar.. ekki:  How I met your mother, Supernatural og Private Practice :(  

Bless 


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.01.2008 00:19:15 / *Elín Sigrún*

Fjölgum bæinn hans Ara hehe

Já hann Ari minn á víst enga blogg síðu og hef ég ákveðið að auglýsa litla bæinn hans hérna inná. Þið þurfið bara að heimsækja bæinn einu sinni á dag og á hverjum degi sem þið heimsækið bæinn fjölgar alltaf einn í bænum hans og eins og staðan er þegar ég skirfa þetta blogg búa 3 í bænum hans. Ég veit að hann Ari er of merkilegur í blogg en það myndi gleðja litla hjartað hans ef það gerðist óvart að fleira fólk kæmi í "bæinn" hans ;) Slóðin er: http://posocco.myminicity.com/

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.12.2007 17:32:17 / *Elín Sigrún*

ÁSKORUN!!!

Jæja núna er að nálgast tvær vikur sem við fórum til Frakklands og ég og Ása erum búnar að setja okkar myndir inn á facebook (ég sleppti nokkrum myndum t.d. ein rassamynd ;) hahahaha!!) þannig hinar tvær eiga eftir að setja einhverjar myndir líka og svo þurfum við að skiptast á video-um...alltaf gaman að eiga þær til...alla vegana þessar hehehe...

» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 23